1. tbl Sáms 2016 | Page 8

Þorsteinn Thorsteinson

-í framboði til stjórnar , til vara í varastjórn

Ég gekk formlega í Hundaræktarfélag Íslands árið 1997 en hafði þá átt hund í nokkur ár og sýndi hund í fyrsta skipti á hundasýningu árið 1991 .
Ég er fæddur árið 1978 , er lærður garðyrkjumaður og náttúrufræðikennari í grunnskóla og starfa sem garðyrkjubóndi á Flúðum í Hrunamannahreppi . Allur aukatími sem ég hef fer í hundana , í bókstaflegri merkingu , en ég á heima 8 hunda , 6 íslenska fjárhunda og 2 saluki .
Ég rækta íslenska fjárhunda og stefni nú að mínu fyrsta saluki goti . Fyrsta gotið með mínu ræktunarnafni , Sunnusteins , kom í heiminn árið 1994 en ég eignaðist ræktunarnafnið þó ekki formlega fyrr en ég hafði aldur til og gekk þá í félagið á sama tíma .
Ég hef áhuga á hundarækt í öllum skilningi þess hugtaks . Hundarnir mínir eru og verða ávallt fyrst og fremst ákkúrat það , hundarnir mínir . Þeir búa inni á heimilinu og þeirra stærsta hlutverk
verður ávallt að vera „ bara “ fjölskylduhundar .
Ég tek virkan þátt í starfi Deildar íslenska fjárhundsins ( DÍF ). Ég sat í stjórn deildarinnar í 7 ár , starfaði þar sem meðstjórnandi , ritari og formaður og var fulltrúi deildarinnar í 4 ár á fundum í alþjóða samstarfinu um íslenska fjárhundinn , Icelandic Sheepdog International Cooperation ( ISIC ). Síðastliðin 2 ár hef ég svo sitið í stjórn DÍF sem tengiliður stjórnar HRFÍ . Málefni íslenska fjárhundsins
8 · Sámur 1 . tbl . 43 . árg . maí 2016