Digital publication | Page 18

Nytsamlegar upplýsingar

Dagskrá: Dagskrá Frostheima er frá 09:00 - 16:00. Bæta við má við viðbótarstund (08:00-09:00 og/eða 16:00-17:00). Greitt er sérstaklega fyrir þessar stundir.

Heimkoma úr ferðum: Við erum vanalega ekki í húsi frá 10:00 og 15:00. Heimferðir geta dregist til 16:00.

Tilkynningar: Mikilvægt er að láta vita fyrir kl 09:30 ef barn ætlar ekki að mæta þann dag, símleiðis eða með sms-i í síma 6955083. Við erum lítið við tölvupóstinn á sumrin.

Nesti: Öll börn þurfa að koma með þrjú nesti á dag (morgunnesti, hádegisnesti og síðdegisnesti). Suma daga grillum við pyslur og þá er velkomið að koma með pylsur og pylsubrauð. Frostheimar sér um sósur og lauk. Nauðsynlegt er að hafa með sér vatnsbrúsa alla daga.